21. janúar – 15. maí
- Lota 121. – 23. janúar · kl. 10:00–17:00
- Lota 219. – 20. febrúar · kl. 10:00–17:00
- Lota 319. – 20. mars · kl. 10:00–17:00
- Lota 416. – 18. apríl · endurnærandi helgi í Birkihofi
- Lota 514. – 15. maí · kl. 10:00–17:00
Sérhannað fyrir þá sem hafa lokið grunnnámi í markþjálfun og vilja dýpka hæfni sína, auka sjálfstraust og ná nýjum hæðum í lífi og starfi. Í hverjum hópi eru að hámarki 14 nemendur.
Ef þú hefur lokið grunnnámi í markþjálfun veistu að markþjálfun er meira en samtalstækni. Hæfnisþættir markþjálfunar leggja traustan grunn en sannir töfrar aðferðarinnar felast í heildrænni hæfni og næmni markþjálfans. Með sterku innsæi og djúpri hlustun getum við skynjað það sem er ósagt eða lesið á milli línanna í samtölum og þannig búið til einstakt rými til vaxtar.
Í framhaldsnáminu leggjum við ríka áherslu á að þróa þessa hæfni með því að efla nemandann á fjölbreyttum sviðum. Námið byggir á viðurkenndum ICF-stöðlum ásamt víðtækri þekkingu og reynslu framúrskarandi leiðbeinenda sem af stakri alúð miðla djúpri visku og innsýn úr faginu.

Framhaldsnámið okkar hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun frá ICF (International Coaching Federation), sem staðfestir gæði og fagmennsku námsins.
Fimm staðlotur með mentorstundum og ástundun á milli.
Í fyrstu lotu leggjum við sterkan grunn fyrir komandi vinnu. Hópurinn myndar og styrkir tengsl sín á milli og áhersla er lögð á að skapa traust og öryggi. Í þessari lotu rifjum við upp helstu þætti markþjálfunaraðferðarinnar og fínpússum hana enn frekar. Nemendur vinna verkefni, sem tengjast þeirra eigin markmiðum eða draumaútkomu, til að skýra hvert þeir stefna og hvað þeir vilja fá út úr náminu. Nemendur fá einnig innsýn í hvernig teymisþjálfun verður samþætt náminu í heild — þannig fá þeir bæði að upplifa að tilheyra teymi og að vera í hlutverki leiðbeinenda.
Nemendur fá fleiri verkfæri í hendurnar og læra að nýta þau í markþjálfasamtölum. Nemendur sem hafa lokið grunnnámi hjá Virkja þekkja svokallaðan meðvitundarskala og hvernig meðvitundin er grunnur að hæfni markþjálfans og hans persónulega vexti. Í framhaldsnáminu köfum við djúpt inn í heim meðvitundar með það að markmiði að auka og rækta okkar eigin meðvitund og læra að nýta hana til að hafa jákvæð áhrif á aðra. Nemendur fá rými til að skoða og endurstilla sín eigin viðhorf og hugmyndir um sjálfa sig og heiminn sem svo hefur umbreytandi áhrif á upplifun þeirra í öllum aðstæðum.
Við höldum áfram að kafa dýpra í aðferðir markþjálfunar með það að markmiði að þróa okkur sem manneskjur, sem aftur hefur bein áhrif á hlutverk okkar sem markþjálfar. Nemendateymið heldur áfram að vinna saman og bæta við sína færni.
Þessi helgi verður sannkölluð helgistund fyrir okkur öll þar sem við kúplum okkur frá öllum daglegum skyldum. Nemendur fá tækifæri til að skoða sig sjálfa, upplifa og innleiða umbreytingu. Þetta er helgi nýs upphafs og persónulegs vaxtar. Birkihof er töfrandi sveitasetur með einkasundlaug, heitum og köldum potti auk sánu, rétt fyrir utan Laugarvatn í 90 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Gist er í tvær nætur og við munum láta dekra vel við okkur á þessum einstaka stað.
Í fimmtu og síðustu lotunni er staldrað aðeins við og skoðað hvert við erum komin miðað við þær væntingar sem lagt var af stað með. Þessi lota er nýtt vel til þess að leggja lokahönd á fræðsluefnið og binda fallega slaufu á ferðalagið í heild sinni. Seinni dagur lotunnar inniheldur uppskeruhátíð og mikinn fögnuð.
Yfir námstímabilið fær hver nemandi þrjá einkatíma í mentor-markþjálfun hjá reyndum markþjálfa og hópurinn fær samtals sjö klukkustundir í hóp-mentor-markþjálfun sem skiptast niður á fjóra fundi. Nauðsynlegt er að nemandinn æfi sig í aðferðinni og markþjálfuninni á milli lota — því meira sem nemandinn æfir sig, því meira mun hann fá út úr náminu. Útbúin verður lokuð facebooksíða sem heldur utan um hópinn á meðan ferðalaginu stendur, með efni og áminningum frá leiðbeinendum og rými fyrir spurningar og lifandi færslur frá nemendum.
Námið kostar 837.000 kr. Í kjölfar skráningar er staðfestingargjald greitt, kr. 50.000, í gegnum kröfu sem er send í heimabanka. Staðfestingargjaldið dregst frá heildarupphæðinni og er óendurkræft. Ef óskað er eftir því að dreifa greiðslum er hægt að hafa samband á virkja@virkja.is til að kanna möguleikana frekar. Við hvetjum þig til að kynna þér rétt þinn til niðurgreiðslu námsgjalda hjá þínu stéttarfélagi, þar sem mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms í markþjálfun. Athugaðu að áður en styrkur er sóttur þarf námsgjald að vera greitt að fullu.
Spurningar berist á virkja@virkja.is eða í síma663 6352.
Næsta framhaldsnám hefst 21. janúar. Tryggðu þér pláss — að hámarki 14 nemendur í hverjum hópi.