Einstaklingsmarkþjálfun

Alvöru árangur

Markþjálfun hjá okkur snýst ekki bara um að koma þér þangað sem þú vilt fara. Við stuðlum að innri vexti samhliða sem er grundvöllur þess að geta notið ferðarinnar og árangursins. Ef við höfum ekki ánægju af því sem við erum að gera, þá verður þeim mun erfiðara að gera það og áhugaleysið mun endurspeglast í útkomunni. Það er ekki árangur.

Markþjálfun er samtalstækni sem miðar að því að hjálpa þér að finna rétta stefnu, leiðina og lausnirnar sjálf(ur). Markþjálfinn er liðsmaður í þínu ferðalagi — hann heldur utan um ferlið og beinir þér að kjarna málsins með beinum tjáskiptum og kraftmiklum spurningum og skapar rými fyrir viðhorfsbreytingar.

Hlustunargeta Laufeyjar nær miklu lengra og dýpra en flestra annarra. Og hjartalagið hennar sem fylgir þessari hlustun er svo kærleiksríkt að mín reynsla af því að fara í markþjálfun til hennar gerði það nánast ómögulegt annað en að mæta sjálfum mér. Svo ef það er það sem þú raunverulega vilt, að átta þig betur á því hver þú ert og hvað þú þarft þá mæli ég með markþjálfun hjá Laufeyju.

Örn HaraldssonTeymisþjálfari og markþjálfi

Fjar-markþjálfun

Markþjálfun á netinu eða í síma getur verið alveg jafn gefandi og augliti til auglitis — algengast er að hvert samtal taki um klukkustund. Fjar-markþjálfun hentar vel þeim sem búa úti á landi eða erlendis, og öllum sem kjósa þessa leið.

Teymisþjálfun

Efling og vöxtur teyma

Við bjóðum upp á sérhæfða teymisþjálfun fyrir teymi sem leitast við að styrkja sig og ná framúrskarandi árangri. Samkvæmt ICF er teymisþjálfun samskapandi ígrundunarferli sem hjálpar teymum að hámarka hæfileika sína.

  • Styrkir sálrænt öryggi — traust umhverfi þar sem meðlimir tjá sig frjálslega
  • Byggir upp traust, skýrleika og samvinnu innan teymisins
  • Unnið í samræmi við siðareglur og staðla ICF
Við störfum í samræmi við siðareglur og staðla ICF, sem undirstrikar mikilvægi fagmennsku í allri okkar teymisþjálfun.
Rúna Björg · Markþjálfi og teymisþjálfari

Fagmennska í fyrirrúmi

Virkja vinnur eftir skilyrðum og siðareglum ICF (International Coaching Federation), alþjóðlegra samtaka markþjálfa sem halda utan um fagmennsku markþjálfunar. Hjá Virkja skiptir fagmennska okkur miklu máli.

Næsta skref

Ert þú með fyrirspurn?

Virkjum möguleika okkar til vaxtar. Þú getur líka hringt beint í síma 663 6352.