
Markþjálfun er samtalstækni: markviss samtöl við þjálfaðan markþjálfa sem hjálpa þér að sjá stöðuna skýrar og taka næsta skref. Hér eru svör við algengustu spurningunum sem við fáum um aðferðina.
Þú hittir markþjálfa reglulega, oftast í um klukkustund í senn, og vinnur markvisst að því sem þú vilt ná fram. Markþjálfinn segir þér ekki hvað þú átt að gera. Hann hlustar, spyr kraftmikilla spurninga og hjálpar þér að komast að kjarna málsins.
Viðfangsefnið velur þú sjálfur: persónulegur vöxtur, aukin lífsgæði, skýrari stefna í starfi eða betri frammistaða. Árangur er það sem þú ákveður að hann sé. Markþjálfinn er liðsmaður í þínu ferðalagi, heldur utan um ferlið og skapar rými fyrir sjálfsskoðun, ný viðhorf og vöxt.
Fyrir hverja er markþjálfun?
Markþjálfun er fyrir alla sem vilja aukinn árangur, vöxt og vellíðan, hvort sem er í einkalífi eða starfi. Forsenda markþjálfunar er að markþegi sæki markþjálfunina á sínum eigin forsendum. Það á líka við um markþjálfun starfsfólks á vegum fyrirtækja.
Hlutverk markþjálfans er ekki að hafa skoðun á því hver þú ert eða hvað þú vilt gera, heldur að draga fram hæfni og möguleika sem búa innra með þér, hjálpa þér að skýra stefnuna og vera bæði styðjandi og áskorandi í þinni vegferð.
Sjá nánar í greininni Hversu margar útgáfur af þér eru til? eftir Laufeyju Haraldsdóttur markþjálfa.
Hver er munurinn á markþjálfun, ráðgjöf og meðferð?
Ráðgjafi kemur með lausnina, mentor deilir eigin reynslu og meðferðaraðili vinnur oft með fortíðina og líðan sem á sér dýpri rætur. Markþjálfi gerir ekkert af þessu. Hann gengur út frá því að svörin séu hjá þér og hjálpar þér að finna þau með hlustun og kraftmiklum spurningum.
Þess vegna horfir markþjálfun fyrst og fremst fram á við og notar fortíðina aðeins til þess að draga lærdóm af henni. Ef þú ert að glíma við vanlíðan sem þarfnast meðferðar er rétta skrefið að leita til fagaðila í heilbrigðiskerfinu, og markþjálfun getur svo nýst vel samhliða eða síðar.
Hvernig fer markþjálfun fram?
Markþjálfun fer að mestu leyti fram sem trúnaðarsamtal á milli markþjálfa og markþega, það er þess sem sækir markþjálfunina. Það er algengt að hver tími sé um klukkustund að lengd og að ein til tvær vikur líði á milli tíma, en nákvæmt snið er ákveðið í sameiningu markþjálfa og markþega.
Markþjálfi er ekki ráðgjafi eða mentor og mun því ekki segja þér hvað þú átt að gera. Í staðinn spyr hann kraftmikilla spurninga og beinir þér að kjarna þess viðfangsefnis sem þú vilt einblína á. Það skapar aukna meðvitund, hjálpar þér að endurskoða ómeðvituð viðhorf og velja ný og meðvitaðri viðhorf í staðinn. Markþjálfi getur einnig notað ákveðin verkfæri til að dýpka skilning og skipuleggja næstu skref.
Hvaðan kemur markþjálfun?
Thomas Leonard er almennt viðurkenndur sem fyrstur til að þróa markþjálfun sem starfsgrein á níunda áratug síðustu aldar, en aðferðin byggir á mörgum eldri fræðigreinum. ICF (International Coaching Federation) eru alþjóðleg samtök markþjálfa sem móta og staðla greinina og setja henni siðareglur. Virkja starfar eftir stöðlum og siðareglum ICF.
Hægt er að skoða aðferðina nánar á vefsíðu ICF.
Get ég lært markþjálfun?
Já. Markþjálfun er starfsgrein sem hægt er að læra, og margir sækja námið fyrst og fremst til að vaxa sjálfir og styrkja samskipti sín, ekki endilega til að starfa sem markþjálfar. Hjá Virkja er kennt ICF-vottað nám í markþjálfun (Level 1) og framhaldsnám (Level 2) fyrir þá sem vilja ganga lengra.
Langar þig að prófa?
Fyrsta skrefið er einfalt samtal. Þú getur kynnt þér markþjálfun hjá Virkja og bókað tíma hjá markþjálfa, eða bókað fría námskynningu ef þig langar að læra aðferðina sjálfur.