ICF-vottuð Level 1 markþjálfamenntun

Nám í markþjálfun

Nám sem hjálpar þér að vaxa, styrkja samskipti þín og læra öfluga aðferð sem nýtist bæði í lífi og starfi. Hvort sem þú vilt skapa breytingar í eigin lífi eða læra að styðja aðra til árangurs, þá er markþjálfun verkfæri sem nýtist þér alla ævi.

Næsta lotunám hefst 15. október — skráning opin
67 stundirklukkustunda staðarnám í þremur lotum með heimanámi á milli
8 dagarsamanlagt átta heilir kennsludagar
10 mentortímarhjá mentormarkþjálfa, þar af þrír einstaklingstímar
Er þetta nám fyrir þig?

Námið hentar þér ef þú…

  • Vilt vaxa bæði persónulega og í starfi
  • Vilt efla sjálfsvitund þína og öðlast dýpri skilning á sjálfum þér og öðrum
  • Vilt byggja upp sterkari og árangursríkari samskipti
  • Hefur áhuga á mannlegum samskiptum, meðvitund og persónulegum vexti
  • Vilt læra að styðja aðra í að ná markmiðum sínum
  • Vilt tileinka þér öflug verkfæri sem nýtast bæði persónulega og faglega
Að námi loknu

Hvað færð þú út úr náminu?

  • Hlusta af meiri dýpt
  • Spyrja kraftmikilla spurninga sem skapa skýrleika og framþróun
  • Þekkja betur eigin gildi, styrkleika og hvata
  • Vera öruggari í samskiptum
  • Geta stutt aðra í að ná markmiðum sínum
  • Hafa lært faglega markþjálfunaraðferð sem nýtist bæði í lífi og starfi
Aðferðin

Hvað er markþjálfun?

Markþjálfun er samtalstækni sem miðar að því að hjálpa þeim sem sækja markþjálfun að hámarka möguleika sína til vaxtar. Viðfangsefni markþjálfunar geta verið persónulegur vöxtur, aukin lífsgæði, betri frammistaða eða hvað annað sem markþeginn ákveður að einbeita sér að.

Hjá Virkja leggjum við jafn mikla áherslu á að þróa markþjálfann og að kenna markþjálfun. Við trúum því að áhrifarík markþjálfun byggist ekki eingöngu á aðferðafræði heldur einnig á sjálfsvitund, nærveru og hæfni markþjálfans til að skapa rými fyrir vöxt annarra. Markmið okkar er að útskrifa markþjálfa sem búa yfir faglegri hæfni, djúpri sjálfsvitund og getu til að styðja aðra á árangursríkan og ábyrgan hátt.

Lesa meira um markþjálfun
ICF-Accredited Coaching Education, Level 1

Gæðavottun

Námið er kennt samkvæmt alþjóðlegum stöðlum ICF og hefur hlotið viðurkennda gæðavottun frá ICF (International Coaching Federation).

Grunnhæfnisþættir markþjálfunar
  • Beitir siðferðislega réttri hegðun
  • Viðhorf markþjálfa
  • Stofnar til og viðheldur samkomulagi
  • Leggur rækt við traust og trúnað
  • Nærvera og viðvera
  • Beitir virkri hlustun
  • Vitundarsköpun
  • Stuðlar að auknum styrk og vexti
Uppbygging

Hvernig er námið?

Námið fer fram í þremur staðlotum með heimanámi og mentorstundum á milli.

Fyrsta lota

Í fyrstu lotu fáum við góða yfirsýn yfir samtalstæknina, öðlumst djúpan skilning á hæfnisþáttum markþjálfunar og kynnumst því hvaða eiginleika hún inniheldur og hvers hún er megnug. Nemandinn öðlast færni í aðferðinni til þess að geta farið að nota hana og æfa sig utan skólastofunnar. Einnig er lögð áhersla á að hver og einn nemandi fái að upplifa krafta markþjálfunaraðferðarinnar á eigin skinni og öðlast þannig dýpri skilning á sjálfum sér og öðrum. Í lok fyrstu lotu fá nemendur úthlutað mentormarkþjálfa en hver og einn nemandi fær þrjá einstaklingstíma hjá reyndum mentormarkþjálfa á meðan á náminu stendur.

Önnur lota

Í annarri lotu förum við á dýptina, köfum í kjarna manneskjunnar og rannsökum flókin fyrirbæri eins og meðvitund og lífsorku auk þess að læra á verkfæri til þess að byggja upp okkar innri styrk og vöxt. Einnig förum við dýpra í lykilþætti markþjálfunar og vinnum verkefni sem styrkja okkur í hlutverki markþjálfans.

Þriðja lota

Í þriðju lotu kynnumst við fleiri verkfærum og aðferðum sem við getum notað í markþjálfun. Einnig skoðum við muninn á hópmarkþjálfun og teymismarkþjálfun. Á síðasta degi lotunnar, sem einnig er hátíðisdagur, leggjum við lokahönd á námsefnið og lærdóminn. Eftir hádegi fögnum við árangrinum og vextinum sem átti sér stað á meðan á náminu stóð.

Milli lota

Á milli lota er heimanám, þar sem hver og einn nemandi markþjálfar samanlagt í sex klukkustundir á milli lotu 1 og 2 og aðrar sex klukkustundir á milli lotu 2 og 3.

Eftirfylgni — hóptímar hjá mentormarkþjálfa

Nokkrum vikum eftir útskrift býðst námshópnum hóptímar með mentormarkþjálfa. Tímarnir veita eftirfylgni til að styðja við áframhaldandi vöxt nemenda eftir námið og efla þróun þeirra í hlutverki markþjálfans. Þessir hóptímar, sem eru alls þrjú skipti, fara fram nokkrum vikum eftir útskrift og samanlagt er um sjö klukkustundir af mentorstundum að ræða. Fyrsta skiptið er staðtími sem tekur þrjár klukkustundir, en hin tvö skipti fara fram á netinu og taka tvær klukkustundir hvort.

Verð, greiðslumöguleikar og styrkir

Námið kostar 549.000 kr. Í kjölfar skráningar er staðfestingargjald greitt, kr. 50.000, í gegnum kröfu sem er send í heimabanka. Staðfestingargjaldið dregst frá heildarupphæðinni og er óendurkræft. Við munum svo vera í sambandi í gegnum tölvupóst með hvernig þú vilt haga eftirliggjandi greiðslu. Ef óskað er eftir því að dreifa greiðslum er hægt að hafa samband á virkja@virkja.is og kanna möguleikana frekar. Við hvetjum þig til að kynna þér rétt þinn á niðurgreiðslu námsgjalda hjá þínu stéttarfélagi en mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms í markþjálfun. Áður en styrkur er sóttur þarf námsgjald að vera greitt að fullu.

Leiðbeinendur

Meðal reynslumestu markþjálfa landsins

Leiðbeinendur okkar eiga samanlagt mörg þúsund klukkustundir í markþjálfasamtölum að baki.

Reynslusögur

Hvað segja nemendur um námið?

Skráning

Næstu námskeið

Takmarkaður fjöldi sæta í hverjum hópi. Kennt er í Bolholti 4, 105 Reykjavík.

Nám í markþjálfun

27. ágúst – 11. október

Uppselt
  • Lota 127. – 30. ágúst · kl. 10:00–17:00
  • Lota 219. – 20. september · kl. 10:00–17:00
  • Lota 310. – 11. október · kl. 10:00–17:00
Skráning lokuð
Nám í markþjálfun

15. október – 29. nóvember

  • Lota 115. – 18. október · kl. 10:00–17:00
  • Lota 27. – 8. nóvember · kl. 10:00–17:00
  • Lota 328. – 29. nóvember · kl. 10:00–17:00

Spurningar berist á virkja@virkja.is eða í síma663 6352.

Umsagnir

Umsagnir nemenda

Takk elsku Laufey fyrir að halda/skapa svona fallegt rými fyrir námið. Ég er búin að vaxa um nokkur númer eftir námið. Þessi vegferð hefur verið gjöf sem erfitt er að koma í orð. Ég mæli heilshugar með þessu námi ef þú ert tilbúin að vaxa og verða betri útgáfa af sjálfri þér, þá ertu komin á rétta staðinn.

Bergþóra KummerBK Dekor

Vááá… þvílíka gjöfin sem leiðbeinendur námsins voru fyrir mig og umheiminn að mínu mati. Metnaður þeirra og ástríðan þeirra á markþjálfun og nemendum sínum skín í gegn allan tímann. Öllum er mætt með aðdáunarverðri hlýju og stuðning í gegnum allt námið. Hvatning þeirra gerir það að verkum að sjálfsefling hvers og eins fær að njóta sín á nýju sviði. Þetta nám gaf mér ofboðslega öflug verkfæri til að efla mig sem manneskju og markþjálfa á komandi misserum. Ég hlakka til framtíðarinnar. Takk fyrir að gefa mér það og allt hitt.

Elías Þór Haraldsson

Markþjálfunarnámið hjá Virkja kennir ótrúlega áhrifaríka samskiptaaðferð sem mun koma til með að nýtast vel í öllum mínum samskiptum í framtíðinni. Hefur aukið hæfni mína í samskiptum, kennt mér að skapa mér og öðrum skýran fókus á það sem skiptir máli. Framúrskarandi leiðbeinendur eru það sem stendur helst upp úr. Faglegt og hnitmiðað nám kennt af mikilli ástríðu fyrir viðfangsefninu.

Eygló SchevingTónlistarkona

Eftir að hafa markþjálfun í huga í nokkur ár og síðan fá markþjálfun frá Laufeyju, þá fann ég mjög skýrt í hjarta mér að mig langaði að læra það sem hún væri að gera. Mig langaði að læra hennar nálgun, hún gerði eitthvað alveg ótrúlegt í hvert sinn sem ég kom til hennar, á máta sem ég tengdi við að væri einstakur á hennar vegu. Svo þegar ég hafði samband og bað um einkakennslu í markþjálfun þá var hún nú þegar að búa til nám í markþjálfun, þvílík snilld og tilviljun. Ég skráði mig um leið og mætti spenntur fyrsta daginn með stórar vonir og væntingar. Ég hef oft brennt mig á að vænta of mikils, en þegar það kom að þessu námi þá var það sannarlega ekki raunin. Námið reyndist vera svo miklu meira en það og umbreytingarnar sem ég finn innra með mér eru svo kærkomnar. Námið og allt sem fellst í því hjálpaði mér að finna parta af mér sem ég hafði gleymt, en við endurfundinn sérlega saknað. Hver lota var líkt og í göngu að tína upp týndu brotin og síðan púsla þeim inn á rétta staði, eða aftur á sinn stað. Ég kom inn í von um að læra tækni og stíg út með betri tök á henni en mér hefði órað fyrir. Laufey og hennar teymi, Rúna og Arnór koma þessu frá sér á svo skýra vegu og veita síðan svo mikinn stuðning og rými til að æfa sig. Allt ferlið var svo þægilegt og gott, þannig þegar ég horfi til baka þá er þetta nám alveg jafn ríkur grundvöllur til þess að gefa sjálfum sér gjöf sem nærir sálina og læra aðferðafræði og nálgun á aðra sem fær þá og mann sjálfan til að ljóma. Það kemur mér á óvart hvað ég finn ríka köllun til þess að byrja að markþjálfa og bera boðskap og gjafir Laufeyjar áfram. Þetta er tækni sem hittir í hjartastað og eitthvað sem allir hafa gott af.

Gísli Gunnarsson

Ástríða mín blossar upp í hæstu hæðir þegar ég fæ tækifæri til að vera til staðar, styðja og leiða einstaklinga og hópa í átt að árangri og betri líðan í lífi og starfi. Sama hvort það er litla brothætta unglingstúlkan í söngnàmi eða stóri öflugi gröfumaðurinn sem fær tækifæri til að vaxa upp í stjórnendastöðu, ég elska að leiða þau í þeirra vegferð. Nú hef ég fengið magnaða aðferð og verkfæri í hendurnar til að gera enn betur à enn betri og árangursríkari hátt. Kennararnir hjá Virkja eru einstaklega vel samsett teymi þar sem eiginleikar og reynsla hvers og eins þeirra koma sterkt i gegn. Með því fáum við nemendurnir víðari sýn á aðferðina og hvernig hægt er að nota hana.

Guðrún Árný GuðmundsdóttirMannauðsráðgjafi

Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka til námsins míns hjá Virkja er heiðarleiki, virðing og kærleikur. Þekkir þú tilfinninguna þegar hugur, hjarta og talandi er í flæði? Þegar þú ert 100 % í sjálfri/sjálfum þér í fullkomnu jafnvægi með hvað þú hugsar, hvað þú segir og hvað þú finnur í hjartanu. Það er einmitt þar sem kraftaverkin gerast. Það er hressilega farið í gegnum atriði í náminu sem kafa ofan í sjálfið, minna mann á hver maður er og fyrir hvað maður stendur og um leið veitir námið aðgang að frábærri verkfærakistu inn í framtíðina. Það eru til allskonar leiðir til að ná sér í markþjálfunarmenntun og ég hef oft verið á leiðinni í það en ástæðan fyrir að ég tók loksins skrefið hjá Virkja var þetta fullkomna traust. Ég vissi að ég væri á réttum stað, vissi að Laufey hefði að geyma þau gildi sem eru mér svo mikilvæg. Elsku Laufey, Rúna og Arnór, takk óendanlega fyrir ykkur ❤ Ef ég dreg námið saman í eitt orð þá er lykilorðið: ❤ „TÖFRAR“ ❤

Guðrún Helga Árnadóttir
Næsta skref

Tilbúin að taka næsta skref?

Næsta nám hefst 15. október. Bókaðu fría námskynningu eða skráðu þig beint — við tökum vel á móti þér.