Kvöldnámskeið fyrir öll

Sjálfsþekking og vöxtur

Fjögurra kvölda ferðalag inn á við — kynnstu gildunum þínum, styrkleikum og ómeðvituðum viðhorfum og lærðu verkfæri sem styðja við vöxt og vellíðan.

Næsta námskeið hefst 29. september — skráning opin
12 stundirfjögur kvöld með æfingum á milli
4 kvöldeitt kvöld í viku í fjórar vikur
14 sætilítill hópur í öruggu og notalegu umhverfi
Námskeiðið

Þekktu sjálfa(n) þig

Öll búum við yfir meiri möguleikum en við nýtum. Á þessu námskeiði notum við verkfæri markþjálfunar til að skoða okkur sjálf: gildin sem stýra ákvörðunum okkar, styrkleikana sem við gleymum að nota og ómeðvituðu viðhorfin sem halda aftur af okkur.

Námskeiðið er fyrir þig — þú þarft ekki að stefna á að verða markþjálfi. Hvert kvöld blandar saman fræðslu, samtali og æfingum sem þú vinnur áfram með á milli kvölda.

  • Persónuleg verkefni og æfingar á milli kvölda
  • Lítill hópur og öruggt rými
  • Verkfæri sem nýtast áfram í lífi og starfi

Fyrir hverja?

Fyrir öll sem vilja kynnast sjálfum sér betur, standa á tímamótum eða vilja einfaldlega vaxa. Engin fyrri þekking á markþjálfun er nauðsynleg.

Uppbygging

Hvernig er námskeiðið?

Kvöld 1 — gildin þín

Við byrjum á kjarnanum: hvað skiptir þig raunverulega máli? Við vinnum með gildin okkar, skoðum hvernig þau birtast — og birtast ekki — í daglegu lífi og hvernig ákvarðanir í takt við eigin gildi auka vellíðan.

Kvöld 2 — styrkleikarnir þínir

Við kortleggjum styrkleika okkar og skoðum hvernig við getum notað þá meira og meðvitaðar. Þú færð endurgjöf frá hópnum og æfingu til að prófa styrkleikana á nýjan hátt í vikunni á eftir.

Kvöld 3 — viðhorfin þín

Ómeðvituð viðhorf ráða því hvernig okkur líður og hvað við teljum okkur geta. Við lærum að koma auga á eigin viðhorf, véfengja þau sem þjóna okkur ekki og skapa rými fyrir ný.

Kvöld 4 — framtíðarsýnin þín

Síðasta kvöldið horfum við fram á veginn. Við tengjumst útkomunni þar sem allt fer á besta veg, setjum okkur markmið í takt við gildin og styrkleikana og gerum áætlun um næstu skref.

Verð og greiðslumöguleikar

Námskeiðið kostar 89.000 kr. og innifalið er allt námsefni og hressing á hverju kvöldi. Mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína á námskeið sem þetta — kynntu þér rétt þinn hjá þínu stéttarfélagi.

Skráning

Næstu námskeið

Takmarkaður fjöldi sæta. Kennt er í Bolholti 4, 105 Reykjavík.

Sjálfsþekking og vöxtur

29. september – 20. október

  • Kvöld 129. september · kl. 19:30–22:00
  • Kvöld 26. október · kl. 19:30–22:00
  • Kvöld 313. október · kl. 19:30–22:00
  • Kvöld 420. október · kl. 19:30–22:00

Spurningar berist á virkja@virkja.is eða í síma663 6352.

Næsta skref

Tilbúin að taka næsta skref?

Næsta námskeið hefst 29. september. Skráðu þig eða sendu okkur fyrirspurn — við tökum vel á móti þér.